17nóvember

Ridill 3

Daginn!

Ian Dowie kom fáum á óvart og vann riðil 2 nokkuð örugglega. Menn voru hins vegar ekki á eitt sáttir um hvort mottan sem Ed De Goey er með væri að gera góða hluti eða hvort hún væri hreinlega ljót.

Ætli við skellum ekki inn svo sem eins og einum riðli í viðbót áður en úrslitarimman verður háð.

Riðill 3

Keppandi nr.1: Steve Ogrizovic
Þetta er dæmi um markmann sem fórnaði sér í allt og hefur aldrei beðið þess bætur. Spurningin er ekki hvort hann nefbrotnaði einu sinni eða tvisvar, frekar tíu eða tuttugu sinnum!























Keppandi nr.2: Steve Bruce
Steve Bruce á það sameiginlegt með Þormóði Egilssyni að hann var leikmaður sem var einhvernveginn alltaf gamall. Hann er líka eini knattspyrnumaðurinn í heiminum sem misst aldrei hvolpafituna sem hann fékk sem smábarn.























Keppandi nr.3: Robert Prosinecki
Það væri synd að halda keppni í að vera ljótur og hafa engan keppanda frá Austur-Evrópu. Allir vita jú að þegar kemur að því að vera ljótur eru Austur-Evrópubúar á heimavelli. Króatinn knái Robert Prosinecki tók það að sér að vera einn af tveimur fulltrúum Austur-Evrópu að þessu sinni og hann tók ekkert aukalega fyrir það, enda toppnáungi. Ég á mjög erfitt með að lýsa því hvernig Prosinecki er ljótur, hann bara einhvern veginn hefur þetta í sér. 





 

















Keppandi nr.4: Trifon Ivanov
Annar Austur-Evrópubúinn í riðli 2 er Búlgarinn Trifon Ivanov. Hann hefur fengið gælunafnið Balkanskaginn af augljósum ástæðum þar sem vitnað er í heimahagana auk þess sem hann er ekki með ólíka hárgreiðslu og ágætur Serbi sem spilaði á Króknum og síðar á Hofsósi við mjög góðan orðstír fyrir ekki svo löngu síðan. Annars er Ivanov bara einn af þessum köllum sem maður myndi segja að hefði "allan pakkann".
























Keppandi nr.5: Alexi Lalas
Til þess að loka þessum alþjóðlega riðli hefur verið fenginn Bandaríkjamaðurinn Alexi Lalas sem sló í gegn á HM 1994. Hann er gríðarlegt kvennagull og smekksmaður mikill eins og sjá má á hans fagra makka. Reyndar efast ég um að meðalfallegur rolluhópur úr Blönduhlíðinni myndi leyfa honum að slást í för með sér sökum þess hversu skerandi það er fyrir augun að horfa á þetta viðundur.























Vid sjaum hvad setur, magir ansi ljótir og nú er bara ad velja.

Annars er ég farinn til Club La Santa á Kanarí eyjum á morgun, fostudag, og kem ekki fyrr en eftir viku. Bæ!
17. nóvember 2006 klukkan 03:24
Aðalsteinn Arnarson
12 athugasemdir
09nóvember

Riðill 2

Daginn!
Gaman var að sjá fjöruga umræðu um ljótustu knattspyrnumenn heims eftir síðustu færslu. Það er alveg ljóst að myndin af Martin Keown, þar sem hann hagar sér eins og kjáni fyrir framan andlitið á Nistelrooy, hefur vakið upp gamlar minningar hjá fólki og viðurkenni ég fúslega að ég er þar á meðal. Hvað sem því líður var það Luke Chadwick sem var óumdeildur sigurvegari í fyrsta riðli . Það er svo sem ekki hægt að vera bitur út í hina keppendurna, þeir áttu einfaldlega við ofurefli að etja. Það er þó von á fleiri riðlum, svona til að fá spennu í þetta.

Riðill 2

Keppandi nr.1: Ed De Goey
Hér er á ferðinni alveg hreint foxljótur markmannstittur eins og Haukur Skúlason myndi orða það. Sumir eru bara fæddir ljótir en aðrir gætu nú reynt að gera sitt til að líta betur út, hvað er til dæmis málið með þetta yfirvaraskegg hjá manninum! Svei!






















Keppandi nr.2: Ian Dowie
Þessi litríki knattspyrnustjóri.... Kannski er ekki rétt að segja litríki, maðurinn er náfölur eins og reyndar ég sjálfur líka. En alla vega þá er þessi knattspyrnustjóri og fyrrum markarókur með eina stóra hrukku í andlitinu sem fær hárin á höfði fólks til að rísa.

























Keppandi nr.3: Steve Lomas
Þessi Norður-Íri er ekki bara ljótur heldur er hann líka yfir aðra hafinn eins og svo glögglega má sjá á meðfylgjandi mynd. Hér gæti hann mjög líklega verið að segja við andstæðing sinn: "Oj, djöfull eruð þið í ljótum búningum."























Keppnadi nr.4: Andy O'Brien
Andy O'Brien er þess konar varnarmaður sem er með nefið ofan í öllu sem sóknarmaðurinn gerir. Hann á sennilega auðveldara með það en aðrir varnarmenn sökum gríðarlegrar neflengdar, en það verður alla vega ekki tekið af honum að hann er alveg hreint prýðilega ljótur.























Keppandi nr.5: Ray Parlour
Að lokum kemur hér einn gamall "Nallari". Mikið var rætt og ritað um fegurðarstuðul gamalla "Nallara" í skoðunum eftir riðil 1. Spurningin nú er hvort fólk kunni að meta gullna lokkar Parlours eða hvort krullurnar séu dottnar úr tísku. Ég vil þó segja eins og góðvinur minn Sveppi eða Kalli á þaklinu sagði í auglýsingu hér um árið: "Eiður minn, krullur eru tímalausar!"























Ég vona sannarlega að keppni í riðli 2 fari drengilega fram og óska keppendum í leiðinni góðs gengis.
Og hver er nú ljótastur?
09. nóvember 2006 klukkan 19:40
Aðalsteinn Arnarson
11 athugasemdir
06nóvember

Ljótasti knattspyrnumaður heims!

Daginn!

Þá er ég búinn að yfirstíga veikindin og er kominn aftur á beinu brautina. Um helgina var haldið partý hérna í skólanum þar sem þemað var Hollywood. Maður átti sem sagt að vera eitthvað celebrity. Ég átti mjög erfitt með að ákveða hvort ég ætti að vera Tom Cruise eða Bradd Pitt enda líkist ég þeim báðum skuggalega mikið. Niðurstaðan varð þó sú að ég ákvað að vera bara umboðsmaður Söndru Bullock enda er það einhver virtasti maðurinn í Hollywood í dag. Þar sem ég fékk loksins nýja myndavél, eftir að sú sem ég keypti um daginn hafi verið í "viðgerð" í 5 vikur, gæti vel verið að ég hendi inn myndum við tækifæri svona fyrir þá sem eru búnir að gleyma því hvernig umboðsmaður Söndru Bullock lítur út. 


Það eru alltaf í gangi alls konar kosningar í hinu og þessu. Í fótbolta er til dæmis alltaf verið að velja besta leikmann í heimi, stjóra mánaðarins eða efnilegasta leikmann norsku úrvalsdeildarinnar. Það hefur þó alveg gleymst að kjósa ljótasta knattspyrnumanninn og því hef ég ákveðið að efna til kosningar í þessum skemmtilega flokki.

Keppandi nr.1:  Peter Beardsley
Berdsley spilaði lengi vel með Liverpool og hefur það sennilega ekki haft mjög góð áhrif á útlit hans. Hans helsti eiginleiki er að hann er búinn að vera með sömu grettuna fasta í andlitinu síðan hann var 4 ára gamall. Það er líka gaman að segja frá því að hann er með munn sem er alveg eins og munnurinn á Arnari Björnssyni íþróttafréttamanni.
























Keppandi nr.2: Matthew Le Tissier 
Mathew Le Tissier er einn af fáum leikmönnum sem spilaði á hæsta leveli í mörg ár án þess að vera nokkurn tímann í formi og minnir hann um margt á góðvin minn Hauk Skúlason í þeim efnum. Það skal þó tekið fram til að forðast allan misskilning að Haukur er ekki líkur þessum manni að nokkru öðru leyti.
























Keppandi nr.3 Luke Chadwick
Það er ekki hægt að halda keppni um ljótasta knattspyrnumanninn án þess að hafa Luke Chadwick með og verður það að segjast eins og er að hann er mjög sigurstranglegur í þessari keppni. Hnn hefur allt til brunns að bera til að vera ljótur leikmaður. Gangi þér vel Luke!




Keppandi nr. 4: Martin Keown
Hér er á ferðinni annar mjög sterkur keppandi sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að vera ljótur...
















Keppandi nr.5:
Stephen Wright
Það er ljótt að segja það, en það er ekki ólíklegt að Stephen Wright hafi verið lagður í einelti í skóla. Ef svo er þá tel ég nánast öruggt að gælunafnið Dúmbó hafi þar komið við sögu...

























Nú er bara að velja hver af þessum heiðursmönnum er ljótastur og ekki væri verra að færa rök fyrir máli sínu.

Vonandi hefur fólk gaman af þessari keppni og ef vel gengur er aldrei að vita nema fleiri riðlar komi í kjölfarið.
06. nóvember 2006 klukkan 03:37
Aðalsteinn Arnarson
21 athugasemd
29október

Veikindi

Daginn!
Eins og ég var búinn ad tilkynna alheiminum var þvottadagur hjá okkur Ingva á miðvikudaginn. Við vorum að þvo sjálfir í fyrsta skiptið og er skemmst frá því að segja að þvotturinn gekk eins og í sögu. Svo var komið að því að skella í þurkarann og gekk það ekki alveg eins vel... Í stuttu máli þá er ég núna með tvennar nærbuxur og einn bol sem passar á ca. 10 ára krakka. Áhugasamir geta haft samband við mig á MSN, steinispil@hotmail.com.

Ingvi var rúmliggjandi í nokkra daga um daginn, með hita og allskonar vesen. Ég var, þó ég segji sjálfur frá, mjög duglegur að hjúkra honum á þessum erfiðu tímum en jafnframt var ég mjög duglegur að minna hann á það hvað ég væri heilsuhraustur maður sem yrði aldrei veikur og hvað hann væri óheppinn að vera ekki svona mikið hraustmenni eins og ég. Það var því helvíti óheppilegt fyrir mig þegar ég vaknaði sjálfur veikur í gærmorgun með kverkaskít og bullandi horrennsli. En svona er lífið bara og ég verð að éta það ofan í mig að jafnvel heljarmenni eins og ég sjálfur veikjast stundum. Þá er komið að Ingva að hjúkra mér og verður drengurinn að leggja sig allan fram ef hann ætlar að standast þær miklu kröfur sem ég geri til þess fólks sem hjúkrar mér í veikindum. Reyndar er ég kannski með frekar háan standard enda mamma hjúkka og pabbi læknir en við sjáum hvernig fer...

Fróðleiksmoli dagsins: Þurrkarar geta minnkað fötin manns!
29. október 2006 klukkan 01:45
Aðalsteinn Arnarson
13 athugasemdir
23október

Þ, Ð og Ö!

Daginn!

Að þessu sinni mun ég bjóða lesendum upp á íslenska bókstafi í fyrsta skipti hér á síðunni í tilefni þess að í dag unnu Manchester United góðan sigur á Liverpool í afar áhugaverðum knattspyrnuleik. Reyndar er ástæðan einnig sú að ég fékk afnot af fartölvu sem hefur þann skemmtilega "fítus" að bjóða upp á íslenska bókstafi.

Það er helst að frétta héðan frá Árósum að heimsmeistaramótinu í fimleikum er lokið. Eins og ég greindi frá hér í síðustu færslu var ég starfsmaður á þessu móti og stóð ég mig með stakri prýði þó ég segji sjálfur frá. Reyndar fékk ég ekki alveg "djobbið" sem ég hafði vonast eftir. Ég fékk frekar ömurlegt starf sem fólst eiginlega í því að þjóna öllum hinum starfsmönnunum. Ég fékk kassa af ávöxtum sem ég átti að labba með um alla íþróttahöllina og bjóða öllu hinu starfsfólkinu. Svo þegar allir voru búnir að fá ávöxt þá átti ég að labba aftur um alla höllina og bjóðast til að leysa starfsfólkið af í smá stund ef það vildi skreppa aðeins á klósettið. Ég get þó sagt það að ég kem út úr þessu verkefni sem betri maður og með mikilvæga reynslu á bakinu sem mun eflaust nýtast mér í framtíðinni.

Svo er stór stund á miðvikudaginn þegar við Ingvi ætlum í fyrsta skipti að reyna þvo þvottinn okkar sjálfir! Ekki það að við séum ekki búnir að þvo fötin okkar neitt í tvo mánuði, en við höfum alltaf fengið einhvern kvenmann til þess að þvo með okkur. Okkar verkefni hefur því yfirleitt verið að taka úr vélinni og hengja á snúruna eða finna öll hvít föt og setja þau saman í einn haug. Það verður því athyglisvert að sjá hvort verkefni miðvikudagsins verði okkur ofviða eða hvort við stöndumst prófið. Ég held að málið sé aðallega að fá góðan nætursvefn næstu tvær nætur og þá ættum við að vera klárir í þetta.

Ég fjárfesti í myndavél um daginn, svaka græja með flassi og minniskubb og ég veit ekki hvað og hvað. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki enn sett inn myndir hér á síðuna er sú að í þessar fimm vikur sem ég hef átt vélina hefur hún verið rúmar þrjár í viðgerð og er þar enn! Ég verð að viðurkenna það að ég er orðinn nett pirraður á þessu enda er ég að spá í að fara í búðina þar sem ég keypti vélina og sýna þessu afgreiðslufólki hvar Davíð keypti ölið! Þetta gengur ekki lengur.

Dagens spørgsmål:
Hvort finnst þér betra, venjulegt Cheerios eða Honey Nut Cheerios?
23. október 2006 klukkan 03:46
Aðalsteinn Arnarson
20 athugasemdir
14október

Stórhátíd ad hefjast!

Daginn!

Eins og allir vita hófst HM í fimleikum hér í Århus í gær, fostudaginn 13. oktober. Mótid stendur til 21. okt. og er án nokkurs efa stæsti ítróttavidburdur sogunnar! Tegar halda á stór ítróttamót tarf ofluga starfsmenn til ad sjá til tess ad allt gangi upp. Tad er tví mikill heidur fyrir mig ad hafa verid valinn til tess ad vera starfsmadur á tessu móti. Ég fékk úthlutad 3 voktum á miklum álagstímum sem segir mér tad ad forrádamenn mótsins setja mikid traust á mig. Ég veit reyndar ekki enn í hverju mín vinna mun felast en mér finnst mjog líklegt ad tad verdi eitt af nedantoldu;

1. Yfirmadur oryggismála: Sem elsta barn af fjórum í minni fjolskyldu hef ég mikla reynslu af barnapossun og hafdi módir mín einmitt oft á ordi hvad henni fannst systkini mín vera orugg í fadmi mínum. Ég var einnig starfsmadur á leikjanámskeidi Alla Munda tar sem mér var kennt hvernig best er ad tryggja oryggi fólks í ítróttasolum.

2. Lyfjaeftirlitsmadur: Tad má segja ad tegar ólogleg lyf eru annars vegar sé ég á heimavelli, eftir ad hafa verid í neyslu í 15 ár. Ég tekki bransann út og inn og finn lyktina af fólki sem stundar lyfjamisnotkun í allt ad tveggja Km fjarlægd! Tá er ég einnig mjog alvorugefinn madur sem myndi aldrei springa úr hlátri tó ég tyrfti ad horfa á Kínverja pissa í plastglas.

3. Áfyllingamadur kalkboxa: Allir sem hafa stundad fimleika eins og ég eda horft á tá í sjónvarpinu vita ad tad tarf ad vera med mjog gott grip til tess ad geta hangid í ollum tessum slám og hringjum. Til tess ad fá tetta góda grip ber fimleikafólkid kalk á hendurnar á sér. Tad tarf einhvern mjog ábyrgan einstakling med mikla efnafræditekkingu til ad sjá til tess ad fylla alltaf á kalkboxid med reglulegu millibili. Sá einstaklingur gæti verid ég...

Hér má sjá einbeittan fimleikapilt bera slatta af kalki á hendur sínar fyrir átokin. Tad var eins gott ad tad var einhver búin ad fylla á kalkboxid...


4. Eftirlitsmadur bogahesta: Bogahesturinn er líklega ein skemmtilegasta og jafnframt erfidasta grein fimleikanna. Tad má ekkert út af bregda og tví tarf bogahesturinn ad standast gædakrofur sem hinn venjulegi fimleikaáhugamadur er ekki fær um ad skilja. Tad kæmi mér ekki á óvart ef ég yrdi settur í tad hlutverk ad sjá til tess ad bogahesturinn sé ávallt í toppstandi og alls ekki valtur.

Tessi gaur væri pott tétt ekki svona svalur ef bogahesturinn sem hann er á væri valtur!


5. Lyftari: Í fimleikum er keppt á morgum mismunandu áholdum. T.d. á bogahesti, tvíslá og í hringjum svo eitthvad sé nefnt. Sum tessara áhalda eru hátt uppi í loftinu tannig ad fimleikamadurinn sjálfur getur ekki hoppad tangad. Tad er tví mjog mikilvægt ad hafa traustan mann med svera upphandleggsvodva til tess ad lyfta fimleikamonnunum upp í áholdin. Tar sem ég er med mjog svera upphandleggsvodva hlyt ég ad koma sterklega til greina sem lyftari.

Einn og tveir og trír og hoppa.... Ég er nú med mun sverari upphandleggsvodva en tessi gaur.



Svo er bara ad vona ad ég fái starf vid hæfi á heimsmeistaramótinu. Tad væri sóun ad hafa mann eins og mig í midasolu eda sem sætavísi og trúi ég ekki odru en ad stjórnendur mótsins noti krafta mína í verkefni sem kalla á kunnáttu mína og lægni. Ég vard fyrir miklum vonbrigdum tegar ég fór á heimasídu RÚV til ad athuga hvort mótinu yrdi ekki sjónvarpad heima á Fróni. Ég gat ekki betur séd en ad Íslendingar verdi gjorsamlega sveltir af ollum fimleikum og tví er mjog ólíklegt ad vinir mínir og ættingjar eigi eftir ad sjá mig bregda fyrir á skjánum. Eina vonin er ad besti sjónvarpstáttur sem sýndur er i íslensku sjónvarpi, Helgarsportid, sýni brot af hápunktum mótsins og ef svo er hlýt ég ad fá minn tíma tar.

Ég vil enda tennan pistil á ad óska fimleikaáhugafólki um allan heim gledilegrar hátídar!

Dagens spørgsmål: Hvert verdur verkefni mitt á HM í fimleikum?
14. október 2006 klukkan 22:18
Aðalsteinn Arnarson
5 athugasemdir
06október

Himmelbjerget

Daginn!

Tad er óhætt ad segja ad tad hafi ansi margt á daga Adalsteins drifid sídan hann drulladist sídast til ad blogga. Nú fer ódum ad styttast í ad fyrsta bindid af fjórum í bókarodinni "Svadilfarir Adalsteins " líti dagsins ljós og er fólk hvatt til ad drífa sig ad tjalda fyrir utan næstu bókabúd til tess ad tryggja sér orugglega eintak.
Um daginn fórum vid í ferdalag med skólanum í einhvern skóg, tar sem vid vorum í 5 daga. Fólki var skipt nidur í fjogurra manna herbergi og var ég svo heppinn ad lenda med gedklofa, Grænlendingi og einum nokkud edlilegum dreng í herbergi. Ég verd ad vidurkenna ad ég átti hálf erfitt med ad sofa med gedklofann í næstu koju, sérstaklega tar sem hann sagdi mér fyrir 3 vikum sídan ad hann væri ad gera tilraunir med ad hætta taka toflurnar sínar tví tær gera hann svo syfjadan. Ég slapp tó lifandi út úr tessari sambúd okkar og tel mig vera betri mann fyrir vikid. Annars afrekadi madur ansi mikid í tessari ferd annad en ad sofa í sama herbergi og gedklofi. Ég bjó mér medal annars til minn eigin hníf, útbjó glæsilega gulrót úr tæfdri ull og sídast en ekki síst kleif ég hæsta fjall Danmerkur! Já, gott fólk, ég er ad tala um Himmelbjerget, stolt donsku tjódarinnar! Tetta 147 metra ferlíki tókst mér á eigin spýtur ad klífa án tess ad vera med áttavita eda GPS tæki vid hendina. Mér finnst reyndar alveg hreint med ólíkindum hvad Danir hampa tessu svokallada fjalli sínu. Tetta minnir einna helst á tad ad labba upp lengri útgáfu af grænuklaufinni, nema hvad tad er ekki búid ad útbúa svona fína malargongustíga upp hana. Tegar upp var komid blasti vid manni fínasta útsýni sem jafnadist tó ekki á vid útsýnid úr eldhúsglugganum heima, enda kannski ósanngjarnt ad bera tessi donsku jólatré saman vid stórbrotid landslang Skagafjardar...

Hér má sjá Himmelbjerget í ollu sínu veldi, umkringt donskum jólatrjám sem Skúli selur fólki í desember.


Ef mér skjátlast ekki er réttum nýlokid heima á Fróni. Vænti ég tess ad fólk hafi skellt sér á svo sem eins og einn réttardansleik og dillad sér í takt vid ljúfa tóna med orlítid áfengistár í blódinu... Gaman væri ad heyra frá félaga mínum Jóa á Reynistad hvort medaltyngd dilka í ár hafi verid svipud og í fyrra eda hvad. Ég býst fastlega vid tví ad Jói fylgist vel med tessu fyrir mig og færi mér fréttir ef eitthvad markvert er ad frétta úr bransanum.

Dagens spørgsmål:
Hvad tydir medaltyngd dilka?
06. október 2006 klukkan 01:37
Aðalsteinn Arnarson
6 athugasemdir
20september

Eintómar veislur

Daginn.
Ég komst ad tví um helgina af hverju Bjorn Ingi er svona mikill gæfumadur og snyrtimenni fram í fingurgóma. Tad er út af tví ad hann hlaut úrvals uppeldi hjá yndislegu fólki. Vid Ingvi fórum í heimsókn til foreldra hans, Óskars og Erlu, sem búa einmitt hérna í Árósum um tessar mundir. Tar var bodid upp á dýrindis pizzu sem brædur hans sáu um ad útbúa og svo var skellt í sig desertbombu á eftir. Tessu var ollu saman skolad nidur med drykkjum vid hæfi og fór madur vel mettur heim. Tau hjónin rúntudu líka med okkur um bæinn og sýndu okkur stadi sem gott er ad tekkja hérna í borginni. Hér er reyndar ekki Skagfirdingabúd, Kaffi Krókur eda Bjarni Har en samt eru ýmsir stadir sem madur gæti turft ad heimsækja. Vid fórum til dæmis í eina mjog svo skemmtilega second hand store tar sem hægt er ad fá notad dót fyrir slikk og ekki neitt. Ég keypti mér næstum tví fína innanhúss fótboltaskó fyrir 800 kr. íslenskar sem væri meira ad segja ódýrt í Bónus. Tetta voru fínustu skór, botninn var reyndar adeins eyddur og stutt í ad gat myndadist á tánni en vid hverju er svo sem hægt ad búast fyrir 800 kall!
Í gær fórum vid Ingvi til Viborg ad hitta Marc sem spiladi med okkur í Tindastól á Króknum í sumar. Hann baud okkur á æfingu hjá Viborg og svo í mat hjá nágronnum sínum og reyndist konan vera celebrity hérna í Danmorku. Hún er atvinnumadur/kona í handbolta og lidid hennar vann meistaradeild Evrópu á sídasta tímabili. Ég er búinn ad vera mjog reidur út í sjálfan mig alveg sídan vid yfirgáfum matarbodid tví ég var svo feiminn ad ég hafdi tad ekki í mér ad bidja um eiginhandaráritun hjá henni sem er náttúrulega ekkert nema skandall.
Tessi skrif um eiginhandaráritanir minna mig á tad hvad madur var duglegur ad safna tessu hérna á árum ádur. Ég átti áritun hjá Magnúsi Scheving sem er reyndar betur tekktur sem Ítróttaálfurinn í dag. Svo átti ég líka áritun hjá Eyjólfi Sverrissyni og risanum Pétri Gudmundssyni sem spiladi í NBA. En toppurinn var án efa áritunin frá Óla Bardal sem ég fékk á korfuboltaleik árid 1998. Reyndar átti ég áritun frá ollum kollunum í lidinu á teim tíma, Lalli, Ómar Sigmars og fleiri frábærir leikmenn sem létu flókinn leik eins og korfubolta líta út fyrir ad vera svo audveldan ad unun var ad fylgjast med.
Ég er kominn med danskt símanúmer fyrir tá sem vilja láta mig vita hvernig vedrid er á fogrum haustkvoldum í Skagafirdinum: (0045) 27 43 25 69. Svo er einnig kominn nýr lidur hér á síduna sem hefur fengid nafnid Dagens spørgsmål, en tad myndi útleggjast á íslensku sem spurning dagsins eda eitthvad í tá áttina.

Dagens spørgsmål: Hver er frægasta persóna sem tú hefur fengid eiginhandaráritun frá?
20. september 2006 klukkan 20:59
Aðalsteinn Arnarson
15 athugasemdir
15september

Ókeypis klósettpappír!

Hér í skólanum er bodid upp á ókeypis klósettpappír, eins mikid og madur vill! Tad er eitt herbergi sem er fullt af tessum ágæta pappír, sem er svona mitt á milli tess ad vera mjúkur pappír frá Lamba eda hardur bensínstodvapappír. Á laugardagskvoldid tegar partýid í skólanum var ad mestu leyti búid og adeins tessir hordustu voru enn á fótum vorum vid nokkrir drengir sem ákvádum ad finna tessum klósettpappír annan og betri tilgang heldur en ad strúka úrgang úr óædri endanum á fólkinu hér á vistinni. Vid tókum nokkrar pakkningar og fórum inn í tau herbergi sem voru ólæst og dreifdum pappírnum yfir tá sem sváfu værum svefni. Tetta gekk misvel, stundum sprakk ég úr hlátri og eydilagdi allt, stundum vaknadi vidkomandi tegar pappírinn straukst vid vanga hans og rak okkur út og stundum gekk tetta svona líka glimrandi vel og vidkomandi hefur tá væntanlega vaknad med ca. 5 klósettrúllur ofan á sér og ekki vitad hvad væri í gangi. Flestir tóku tessu med jafnadargedi en sumum fannst tetta ekkert fyndid... ótrúlegt en satt. Medal terra sem voknudu med slatta af pappír ofan á sér var íslensk stelpa sem heitir Kristín Lilja. Henni var ekki skemmt og ákvad hún tví ad hefna sín á okkur. Hún fékk herbergisfélaga okkar, sem stódum ad klósettpappírsuppátækinu, til tess ad skilja eftir ólæst tegar vid fórum ad sofa á sunnudagskvoldinu. Herbergisfélagi minn, hann Ingvi(núna kalladur JÚDAZ), sveik mig og skildi eftir ólæsta hurd. Svo veit ég ekki fyrr en ég vakna vid tad, kl. rúmelga 6 um morguninn, ad tvær stúlkur sem hafa enga samvisku eru ad hella yfir mig vatni. Ég lá bara eins og saklaust lamb í túni og var ad dreyma um midnætursólina í Skagafirdi á fallegu sumarkvoldi.... Ekki nóg med ad ég fékk vatnsgusu yfir mig heldur var tad líka tekid upp á myndband. Vid félagarnir hofum tví ákvedid ad lýsa tessum stúlkum stríd á hendur. Vid svorudum reyndar fyrir okkur á midvikudaginn med tví ad hella yfir tær fotu af vatni tegar tær lágu í sólbadi hérna í gardinum. En vid erum hvergi nærri hættir og holdum áfram tangad til tær veifa hvíta fánanum og gefast upp, tví sókn er jú besta vornin.
Ég hef ekki verid med heppnina á mínu bandi undanfarna daga. Um daginn var ég ad rolta á strætóstoppustodina til ad komast nidur í bæ. Strákarnir sem voru med mér fóru adeins á undan mér og hringdu svo í mig tegar ég átti smá spotta eftir og sogdu ad strætóinn væri kominn! Ég bad tá ad reyna ad tefja adeins fyrir bílstjóranum tví ég væri alveg ad koma. Svo fékk ég tad snilldarrád ad stytta mér leid um ca. 20 metra eda svo - engin smá styttig.... Tad eina slæma vid tessa styttingu var ad tá turfti ég ad príla yfir girdingu, sem ég hafdi ekki tíma til ad príla yfir. Ég ákvad tví med minn mikla stokkkraft ad reyna ad hoppa yfir girdinguna, svona svipad og hástokkvarar gera nema med magann nidur í stadinn fyrir bakid. Tad fór ekki betur en svo ad ég flækti fótinn í vír og lenti med ennid í jordinni og rispadi á mér hendur og fætur. Ég fékk fína kúlu og sár á ennid en trátt fyrir tetta mikla áfall ber ég mig vel í dag og hvet ykkur eindregid til ad gera tad sama ef tid erud ad missa af strætó.
Tad er búid ad vera frábært vedur hérna ad undanfornu, en gódu vedri fylgja.... Mýflugur! Ég fékk heldur betur ad kenna á teim eina nóttina í vikunni. Mér var svo gedveikt heitt tegar ég var ad fara sofa ad ég opnadi svalarhurdina alveg upp á gátt og svaf ofan á sænginni. Tegar ég vaknadi daginn eftir hafdi hópur skítugra og ósvífinna mýflugna gert á mig árás og var ég med hvorki fleiri né færri en 12 mýbit út um allan líkamann! Af hverju turftu tessar helvítis flugur ad velja mig, ég meina Ingvi fékk ekki eitt bit og hann lá í næsta rúmi, ég hefdi verid sáttur med sex á mig og sex á Ingva en ekki 12 á mig og ekkert á Ingva! Eina skýringin sem ég hef á tessu er ad ég sé svo ómótstædilegur ad flugurnar hafi hreinlega ekki gatad slitid sér frá mér. Tetta líf er ekki alltaf sanngjarnt.
Annars er tad helst ad frétta af honum Ingva ad enn eina ferdina hefur kaupædid gripid hann og hann verslar á vid 12 manna saumaklúbb! Tad er ekkert grín ad versla svona mikid tví hann er núna allur út í blodrum á hondunum eftir ad hafa haldid á ollum innkaupapokunum. Tessi dæmisaga ætti ad kenna fólki ad tad er ekki hollt ad versla of mikid.

Hér er mynd af studningsmannaklúbbi Íslands í skólanum fyrir leikinn gegn Danmorku um daginn.
Íslenska mafían

Af hverju voldu flugarnar mig?

Venlig hilsen,
Alli
15. september 2006 klukkan 15:12
Aðalsteinn Arnarson
4 athugasemdir
08september

Frelsum Villa!

Ég er enn ad ná mér eftir ad hafa horft á Íslenska landslidid skíta upp á bak á móti Donum í gær. Ekki tad ad madur hafi aldrei séd íslenskt landslid skíta upp á bak ádur, tad hefur oft komid fyrir. En í gær horfdi ég á leikinn ásamt fullt af fólki á sal skólans og vorum vid Íslendingarnir búnir ad vera med miklar yfirlýsingar um ad nú myndum vid taka tá í rassgatid! Vid smoludum í 18 manna studningslid sem innihélt 13 Íslendinga, 3 Breta, 1 Ekvadora og 1 Dana. Vid máludum íslenska fánann í andlitid á okkur og létum ollum illum látum fyrir leik en Danirnir sátu stilltir og prúdir í hinum endanum á salnum og hneyksludust á tví hvad ég var brothættur á háu tónunum tegar ég song tjódsonginn af mikilli innlifun ádur en leikurinn byrjadi - án efa hápunkturinn á mínum glæsta songferli. Svo var ég náttúrulega líka búinn ad vedja vid einn Danann tveimur kippum ad ísland myndi vinna eda ná jafntefli. Ekki tad ad bjórinn sé dýr hérna en samt... En eins og allir vita var leikurinn varla byrjadur tegar Danir skorudu og sídan á tví augnabliki hefur ekki verid neitt spes ad vera Íslendingur í Danmorku, en ég er med breitt bak og harka tetta af mér Gráta

Annars er tad helst ad frétta hédan ad vid Ingvi hofum verid ad rífast mikid ad undanfornu. Tad komu upp nokkur leidinleg ágreiningsmál og oft munadi engu ad upp úr myndi sjóda, en Ingvi var heppinn tví eins og fólk getur ímyndad sér hefdi hann ekki átt séns í mig ef ég hefdi rokid í hann... Vid ákvádum tó ad tad væri snidugt ef vid myndum útvega okkur tridja adila í herbergid sem hefdi úrslitavald ef vid værum ósammála. Tess vegna skundudum vid í dýrabúd og keyptum einn fluggáfadan blodrufisk sem fékk fljótlega nafnid Willy eftir frænda sínum í myndini Frelsum Villa eda Free Willy. Nú í dag var einmitt verid ad stofna hér í skólanum félag sem hefur tad ad markmidi ad frelsa Willy úr klóm okkar ádur en skólanum lýkur.

Vonandi heldur madur svo áfram ad nenna ad skrifa eitthvad hér inn og svo gæti verid ad heppnir menn fengju jafnvel eins og einn tengil yfir á sína sídu ádur en langt um lídur.

08. september 2006 klukkan 01:35
Aðalsteinn Arnarson
7 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur